Skilmálar

1. Almennt

1.1 Eftirfarandi skilmálar gilda um allar pantanir viðskiptavina á vörum og
framleiðslu Stapaprents ehf. Gangist viðskiptavinur ekki undir neðan greinda
skilmála mun beiðni hans um viðskipti verða hafnað.
1.2 Skilmálar þessir verða endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur og breytingar
geta tekið gildi án þess að til birtingar þeirra komi fyrir fram.

2. Skyldur kaupanda

2.1 Kaupandi þjónustunnar skal sjálfur ganga úr skugga um að hann hafi heimild til
að nýta sér og gera afrit af því myndefni svo og öðru efni háðu lögum um eignar- og
afnotarétt sem hann óskar að fá prentað. Gildir þar sú almenna regla að afla verður
samþykkis eigenda fyrir allri notkun hugverka, þ.m.t. vegna mynda sem teknar eru af
alnetinu. Kaupandi ber einn alla ábyrgð á öllum hugsanlegum brotum gegn
hugverkaréttindum þriðja aðila.
2.2 Sé um að ræða ljósmynd af einhverjum öðrum persónum en kaupanda sjálfum
skal kaupandi afla sér heimildar frá öllum þeim aðilum áður en myndin er notuð. Í
slíkum tilfellum getur Stapaprent ehf krafist þess að kaupandi sýni fram á
fullnægjandi sönnun þess að slíkrar heimildar hafi verið aflað.
2.3 Kaupanda er ekki heimilt að gera afrit af prentgrunnum Stapaprents ehf.
Höfundar- og afnotaréttur af þeim er alfarið í höndum Stapaprents ehf.
2.4 Leggi einhver aðili fram kröfur gegn Stapaprents ehf. sökum þess að prentverk
hefur brotið gegn hans réttindum (sem dæmi ef kaupandi hefur vanrækt að afla
tilskilinna heimilda, sbr. grein 2.2) skal kaupandi einn bera ábyrgð á slíkum brotum
og fallast á að bæta Stapaprent ehf. allan þann skaða sem af slíkum brotum kann að
hljótast.

3. Fyrirvarar Stapaprent ehf .

3.1 Stapaprent ehf áskilur sér allan rétt, af hvaða ástæðu sem er, til að hafna hverju
því efni sem kaupandi sendir inn til vinnslu. Í slíkum tilfellum skulu kaupanda
endurgreiddar þær fjárhæðir sem hann hefur þegar greitt Stapaprent ehf. í tengslum
við prentverk að undanskildum mögulegum vinnslukostnaði, hafi forsendur tekið
breytingum í verkferlinu. Vakni grunur um að innsent efni brjóti í bága við almenn
hegningarlög, verður það tilkynnt lögreglu tafarlaust.
3.2 Stapaprent ehf áskilur sér allan rétt til þess að draga til baka prentverk og stöðva
prentun þess. Í slíkum tilfellum skulu kaupanda endurgreiddar þær fjárhæðir sem
hann hefur þegar greitt Stapaprent ehf. í tengslum við prentverkið að undanskildum
mögulegum vinnslukostnaði, hafi forsendur tekið breytingum í verkferlinu.
3.3 Við prentverk getur komið til frávika í litbrigðum, myndgæðum og staðsetningu
myndar og annara þátta í prentskjölum. Kaupandi samþykkir að endanleg útgáfa sé
háð gæðum þeirrar ljósmyndar eða þess myndefnis sem hann lætur Stapaprent ehf í
té.
3.4 Hönnun og uppsetning getur sætt breytingum af hálfu Stapaprent ehf. án
fyrirvara.

3.5 Ekki er hægt að afturkalla beiðni eftir að prentun hefur farið fram né fá
endurgreitt þegar búið er að staðfesta pöntun.
3.8 Prentun prenta verka er virðisaukaskattskyld og ber því virðisaukaskatt
samkvæmt lögum þar um.

4. Trúnaður

4.1 Stapaprent ehf heitir fullum trúnaði er varðar allar þær upplýsingar sem eru
gefnar upp í tengslum við viðskiptin. Sjá nánar persónuverndar stefnu stapaprents
ehf

Senda gögn

til prentunar